Tromp í erminni ??

Ef framsókn hættir ekki þessu kjaftæði um slit, þá á Sjálfstæðisfl. tromp í ermi. Fyrsti stafurinn byrjar á VG.  Hvað gerir félagi Ómar nú ??

Já það er gott að búa í Kópavogi.


mbl.is Falið að ræða við Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rugl.

Þegar klumpur var í hlaupabransanum á sínum tíma voru 20 km. alveg nóg, allt umfram það er tímasóun og algjört rugl. Mæli ekki með þessu, þið eyðileggið á ykkur lappirnar með þessu. STUPID !
mbl.is Setti Íslandsmet í 100 km hlaupi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lagið vinnur á og söngkonan er góð

Enska lagið er það eina sem ég man núna tveim dögum seinna, fyrir utan efstu 2 lögin. Það er einhver X faktor í viðlaginu  " It´s my time, it´s my time....  " Eins og sungið út úr munni Jóhönnu okkar (Sigurðardóttur). Semsagt fínt lag og góð söngkona.
mbl.is Jade Ewen er hetja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jákvæð frétt ???? onei

Koma ísbjarna flokkast undir náttúruvá. Að ljúga til um slíkt (sambærilegt við eldgos, skógareld eða snjóflóð) vísvitandi flokkast undir hvílíkan hálfvitahátt að það ætti að sjálfsögðu að vera refsivert (ef það er það ekki nú þegar).  Brotaviljinn er einbeittur og í þessu tilfelli samantekin ráð margra fullorðinna (fullra ??) einstaklinga. Oddfellowhreyfingin á að sjálfsögðu að reka þessa menn alla sem einn úr félaginu, annað er yfirhylming eða a.m.k. samþykki á svona fíflagangi. Hvað gera þessir menn næst ? Ég ætla allavega ekki að eiga nein viðskipti við þessa menn framvegis, svo mikið er víst.
mbl.is Ísbjörninn blekking
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á ábyrgð skólanna

Ég hef margoft bent á að  svona fjallgönguáfangar eru rugl. Nemendum í MH er skipað af fara í öllum veðrum, m.a. á Esjuna. Þetta eru yfirleitt óvanir unglingar. Algjör hálfvitagangur hjá leikfimikennurum skólanna.
mbl.is Á syllu í þrjá tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brot úr ræðu séra Tómasar

Gott kvöld. Árið 1839 (fyrir 170 árum) hélt séra Tómas Sæmundsson ræðu á fundi, sem honum var boðið á. Hann fjallaði þar um sjálfskaparvítið. Hann sagði : " Þegar menn reka sig á, kollhlaupa sig og verða sér til minkunnar, hvað er það þá annað en straff fyrir að þeir fóru of óvarlega, tóku sig of geyst, fyrir að þeir hrokuðu sig upp og kunnu sér ekki hóf ? Já, hefndin kemur þá er minnst varir fyrir það sem maðurinn fer flatt á af sjálfskaparvítum, eða af vanþekkingu, sem reis af því að hann hliðraði sér hjá því að leita sannleikans. En þeir færu sér ekki að voða ef sannleikurinn væri ljós á vegi þeirra".  

Var einhver að tala um útrásarvíkingana ?

Séra Tómas Sæmundsson var einn Fjölnismanna, fluggáfaður og forsjáll. Hann ráðlagði mönnum að leita hins fagra, góða og sanna, og ana ekki út í vitleysu. En sagt er að enginn sé spámaður í eigin föðurlandi. Hann lést langt um aldur fram úr lungnaveiki. Hann var jarðsettur ( ásamt 3 fjölskyldumeðlimum sem dóu í sömu vikunni ) í kirkjugarðinum að Breiðabólstað í Fljótshlíð. Það mun hafa verið ein sú nöturlegasta jarðarför, sem frram hefur farið á Íslandi. Þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Blessuð sé minnig hans og hans fjölskyldu.

 


mbl.is Sigmundur Davíð spáir öðru hruni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver borgar brúsann ?

Vilja þessir ágætu herramenn segja á sér frekari deili, ásamt því að upplýsa þjóðina hvaða fyrirtæki borgar birtingarkostnaðinn ?
mbl.is Áhugahópur um endurreisn kemur í ljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Toppmaður !

Til hamingju Gunnar. Láttu nú hendur standa fram úr ermum.
mbl.is Gunnar Andersen forstjóri FME
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stupid frétt. Einstaklingi ?

Slæmt mál, en af hverju er lýsingin svona óljós ? Er þetta karl eða kona ? Hverslags feluleikur er þetta ? Ef upplýsingarnar væru haldbetri myndi e.t.v. einhver geta vísað lögreglu á slóð viðkomandi.
mbl.is Leitað að aldraðri konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigur, Jamm og já

Ég velti fyrir mér muninum á baráttusigri og ekki baráttusigri (sem er þá væntanlega heppnissigur án neinnar sérstarkrar baráttu, nú eða að liðið hafi einfaldlega mútað dómurunum), og svo góðum sigri og ekki góðum sigri (= vondum sigri). Í þessari frétt er sérstaklega tekið fram að um baráttusigur hafi verið að ræða (fyrirsögn) og einnig góðan sigur (fremst í frétt). Kannast hlustendur við muninn á þessum tegundum sigra ?  Annars er mér alveg sama hver sigrar, aðalatriðið er að vera með (gamli góði ungmennafélagsandinn). Fótbolti er hvort eð er óskaplega prímitíf íþrótt, þar sem úrslit ráðast yfirleitt á tilviljun.
mbl.is Baráttusigur hjá Portsmouth
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband