9.5.2009 | 22:01
Jákvæð frétt ???? onei
Koma ísbjarna flokkast undir náttúruvá. Að ljúga til um slíkt (sambærilegt við eldgos, skógareld eða snjóflóð) vísvitandi flokkast undir hvílíkan hálfvitahátt að það ætti að sjálfsögðu að vera refsivert (ef það er það ekki nú þegar). Brotaviljinn er einbeittur og í þessu tilfelli samantekin ráð margra fullorðinna (fullra ??) einstaklinga. Oddfellowhreyfingin á að sjálfsögðu að reka þessa menn alla sem einn úr félaginu, annað er yfirhylming eða a.m.k. samþykki á svona fíflagangi. Hvað gera þessir menn næst ? Ég ætla allavega ekki að eiga nein viðskipti við þessa menn framvegis, svo mikið er víst.
![]() |
Ísbjörninn blekking |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Ekki vera svona mikil dramadrotting..
Hlynur K. (IP-tala skráð) 9.5.2009 kl. 23:15
Fullýkt túlkun kannski. Upp með húmorinn.
Víðir Benediktsson, 10.5.2009 kl. 08:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.